Mér leiðist alveg svakalega mikið eins og er. Er búinn að vera ágætlega duglegur að æfa mig í dag, en nú er klukkan orðin sjö og ég vil ekki æfa mig eftir þann tíma vegna tillits við nágranna minna.
Ég fór í smá göngutúr áðan og skoðaði mig um hérna í Diemen. Maður er einhvern veginn alltaf á leiðinni frá einum stað til annars og það var mjög gefandi að labba án nokkurrar stefnu. Göngutúr er samkvæmt lögmálum eðlisfræðinnnar engin vinna, því maður endar á sama stað og maður byrjaði, hvernig var formúlan aftur, kraftur+Vegalengd=Vinna. Man þetta engan veginn hárrétt og fer eflaust örugglega með rangt mál, en maður má nú hafa rangt fyrir sér líka.
En já, ég gekk um í Diemen og sá meðal annars að Dominos er hérna rétt hjá. Það vissi ég ekki. Síðan sá ég líkan annan stað við hliðina á pizzustaðnum og það var take away grill staður, hægt að fá sér marga flotta kjötrétti á þeim stað.
Ég kom við í húsdýragarðinum sem er hérna rétt hjá og hafði gaman af að horfa á kalkúna og smáhesta.
En nú leiðist mér hins vegar. Allir virðast vera eitthvað svo uppteknir. En hvað það væri þægilegt ef veröldin myndi snúast um mig og að allir væru alltaf til í að gera mér til geðs. En það vill nú oft verða þannig að þeir sem eru alltaf tilbúnir að þóknast öðrum fá lítið til baka.
Jæja, þýðir ekki að síta það. eða er það sýta? ég er farinn að ryðga í íslenskri stafsetningu.
Ég gekk fram hjá kaupmanni áðan, minnti á kvöldbúð. Það stóð nú reyndar ekki avondverkoop en það hlýtur að vera ein þannig búð í þessu sveitarfélagi. Hafði ekki ráð til að fara í Albert til að byrgja mig upp af bjór í dag, þannig að ég treysti á að þessi búð sé opin.
Star Trek og bjór í kvöld, en sleppi flögunum.
Saturday, March 15, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment