Barcelona mistókst að nýta sér ófarir Real Madrid og gerðu 2-2 jafntefli við Almeria. Eiður Smári lék allan leikinn og stóð sig í það heila mjög vel. Barca fengu á sig bæði mörkin eftir hornspyrnur og var fyrra markið virkilega klaufalegt. Bojan og Eto´o skoruðu mörk Barca.
Tími hjá Ivan á morgun og ég er vel undirbúinn. Á að spila á brasstónfundi næstkomandi miðvikudag og er bara nokkuð vel stemmdur. Kann verkið mjög vel þó enn sem komið er treysti ég mér ekki til að spila það blaðlaust. En það kemur. Stefnan hjá mér er að spila allt prófið mitt utanbókar, sama hvað Ivan segir.
Það var þvílíkur reykjarmökkur á barnum í kvöld. Líður hálf illa. Það er ofar mínum skilningi af hverju það er ekki löngu búið að banna reykingar á almannafæri.
Jæja, komið að star trek. Þegar Barca klúðrar svona leik eins og áðan þá þýðir ekkert annað en að reyna að halda áfram með líf sitt, hægara sagt en gert.
Sunday, March 16, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment