Allavega eins og er. Er alveg hitalaus og bara smá óþverri í nefinu, annars er allt komið í eðlilegt horf. Grímur kom aftur í dag og það var gott að fá hann til baka, aðeins meiri félagsskapur, þó Tony sé fínn.
Ég er ekki búinn að raka mig í 10 daga, er orðinn eins og einhver villimaður. Er farið að klæja aðeins of mikið og held ég að grysjunaraðgerðir séu óumflýjanlegar.
Sleðinn á tenornum er í einhverju óstuði, held ég verði að láta kíkja á hann, aðeins of hægur fyrir minn smekk.
Ég kláraði Mozart skýrsluna, á bara eftir að fínpússa hana aðeins og vera viss um að ég sé ekki alltof mótsagnakenndur í skrifum mínum.
Barcelona duttu út úr spænska bikarnum í gærkvöldi, ég sá ekki leikinn en svo virðist sem vörnin hjá Barcelona hafi brugðist enn einu sinni. Nú er ekkert annað í stöðunni en að auka við blóðþorstann í deildinni og Meistaradeildinni.
Þarf að mæta á æfingu í fyrramálið í smá hljómsveitarproject. Þrennir tónleikar næstkomandi föstudag fyrir alla 12 ára krakka í Amsterdam. Ætti að vera dáldið spennandi.
En nú verð ég að raka mig, hef haldið út of lengi nú þegar.
Friday, March 21, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment