Sunday, March 9, 2008

vaknaður

Klukkan er hálf 7 og ég er búinn að vera vakandi í klukkutíma. Hafði ekkert að gera í gærkveldi þannig að ég fór bara í rúmið um átta leytið. Var mjög ákveðinn í því að sofa til morguns og gerði það bara, svona getur maður verið agaður þegar maður vill það.

Ég reyndar svaf eiginlega ekki neitt aðfaranótt laugadagsins, það var partý hjá Loes og það entist til morguns, kom ekki heim fyrr en um 11 leytið í gær, fyrir hádegi.

Gærdeginum eyddi ég bara í að spila á munnstykkið og lesa og horfa á Star Trek. Voða indælt. Grímur var ekki heima og það eina sem maður heyrði í Tony voru hlátrasköll sem við og við þutu upp úr honum.

Barcelona-Villareal í kvöld. Veit ekki hvort ég nái að horfa á hann. Marta ætlar að koma í hljómfræðitíma eins og venjulega á sunnudögum. Sem þýðir að ég þarf ekki að hugsa um kvöldmat í kvöld :)

1 comment:

Anonymous said...

ég skal sjá um upplýsingagjöfina á leiknum í kvld