Þrátt fyrir mikinn svita tókst mér að sofa nokkuð vel síðastliðna nótt. Enn er smá vottur af veikindunum en mér líður margfalt betur.
Ivan hringdi í mig í gærkvöldi og aflýsti tímanum sem átti að vera í dag. Hann bað mig hins vegar að lána sér nótur fyrir tónleika sem hann er að spila á á morgun. Hann gat ekki fundið eigið afrit af Song for Lotta þannig að hann leitaði til mín. Það þýddi auðvitað að ég þurfti að hjóla niður í skóla í tæplega 30 stiga hita.
Ferðin sem tekur venjulega 10 mínútur í góðu veðri tók núna rúmar 20. Ég rétt sniglaðist áfram á hjólinu til að koma í veg fyrir að ofvirkir svitakirtlar mínir byrjuðu að starfa. Allt kom fyrir ekki og ég svitnaði gífurlega.
Nú er smá gola komin úti og við það er hitinn ekki jafn óbærilegur.
Er búinn að horfa á nokkra CSI þætti í dag og í gær. Sama hvað hver segir þá finnst mér þetta vera góðir og skemmtilegir þættir. Það tvinnast saman morð og vísindi og svo er yfirmaðurinn fagidíót af bestu sort.
Holland er mörgum ljósárum á eftir Íslandi í tæknivæðingu og húsakosti. Í skólanum mínum er engin loftkæling. Og til að toppa allt er búið að banna að opna glugga þegar slagverk, brass og söngvarar eru að æfa sig inní herbergjunum. Fyrir utan náttúrulega rokk og popp deildirnar og Jazzinn.
Nú kemur ekki til greina að ég æfi mig í skólanum.
Það góða við minn helming íbúðarinnar minnar að hann er í skugga. Sólin skín aldrei inn. Það bjargar öllu.
Ég hef getað spilað smá á munnstykkið í dag og ætla að spila á básúnuna á morgun. Hef ekkert getað spilað síðan á mánudag.
Ætli ég lesi ekki eitthvað núna.
Ble
Friday, April 27, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
REKA IVAN!
Post a Comment