Tuesday, April 10, 2007

ójjjjjjjj

Úff, horfði á eina verstu mynd sem ég hef nokkurn tímann séð. American Dreamz. Það var Hugh Grant kvöld hjá mér í kvöld. Leigði Bridget Jones 2 og áðurnefndan sora. Horfði á Bridget Jones fyrst og hún var bara nokkuð góð, var að sjá hana í annað skiptið.

Til hamingju, þeir sem horfðu á fréttirnar klukkan 7 í kvöld. Þið hafið í leiðinni séð fágætan filmubút af mér spilandi. Nei, bara að grínast. Einskis vert, enn sem komið er. Fyrir þá sem ekki vita þá var þetta brot af æfingu með Sinfóníuhljómsveit Tónlistarskólanna á sínu fyrsta starfsári. Ég lék einleikspartinn í Ariel. Básúnukonsert eftir John Speight sem var svo elskulegur að tileinka mér verkið.

Ég get ekki beðið eftir því að spila verkið aftur. Það eru svo fallegir kaflar í því. Hlusta á upptökuna sem var gerð á frumflutningnum reglulega og ég verð að játa að ég tárast á sumum stöðum. Af tveimur ástæðum verð ég að nefna. Tónlistin er svo fögur og svo spila ég stundum svo falskt að mig verkjar í eyrun. En allt beint frá hjartanu ;)

Nú ætla ég að setja í gang nýkeyptan disk með Sharon Bezaly og reyna að ná mér niður svo mér takist kannski að sofna eitthvað aðeins áður en ég á að vakna.

Kem til Íslands á laugardaginn. :)

1 comment:

Anonymous said...

Góði hvíldu þig á þessari afþreyingu allri. Hjólatúr um hina fögru Amsterdam er eina vitið.

Verður gaman að fá þig heim!