Ég las á netinu áðan að Manchester United hefði unnið Roma hvorki meira né minna en 7-1. Ég hef aldrei heyrt um svoleiðis markatölu í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Ég óska stuðningsmönnum fyrrnefnds liðs til hamingju. Ég þekki enga alvöru stuðningsmenn Chelsea þannig að ég sleppi því að óska þeim til hamingju.
Fyrsti skóladagurinn eftir páska og ég nýtti hann til hins ýtrasta. Vaknaði í tæka tíð fyrir æfinguna sem var klukkan 14:00. Náði hálftíma upphitun og sturtuferð fyrir æfinguna. Sá sem átti að stjórna æfingunni lét hins vegar ekki sjá sig. Við spiluðum þá bara sjálf yfir nokkra velvalda staði. Hver þarf svo sem stjórnendur?
Ég var kominn heim um hálf fimm leytið og æfði mig til klukkan sex með smá hléum. Borðaði svo loksins kebab í kvöldmat og fór í skólann um rúmlega 7 og var þar til að verða 11. Með hljóðfærið á kjaftinum nær allan tímann.
Það er eitt svo stórfurðulegt. Ég á að spila 4 verkefni á prófinu mínu í lok maí. 2 hef ég spilað áður. Cavantine eftir Saint-Saens og 1. kaflann í Gröndahl. Ég á í gífurlegum erfiðleikum með að fínpússa tæknileg atriði í þeim tveim verkum á meðan miklu erfiðari strófur í hinum verkunum hljóma miklu betur.
Ég er á því að ástæðan fyrir þessu sé sú að minnið mitt sé að trufla mig. Ég vandist því að spila verkin á ákveðin hátt og ég á erfitt með að yfirfæra aukna tækni inn í verkin. Músíklega eru þau góð en það eru alltaf sömu staðirnir sem klikka tæknilega. Þyrfti helst að dáleiða sjálfan mig og eyða þessu slæma minni.
Á morgun er seinni umferðin í meistaradeildinni. Ef ég verð sáttur með dagsafköstin þá horfi ég á leikina. Það er ansi skrýtið hvað meistaradeildin kemur mér varla við núna eftir að Barcelona datt út. Líklegast er það að því að Liverpool vann svo öruggt fyrri leikinn í átta liða úrslitunum. Horfi pottþétt á undanúrslitin. Ég vona að það verði: Chelsea-Liverpool og Man. Utd-AC Milan og síðan Liverpool-AC Milan í úrslitum. Ég myndi ekki meika að mæta Man.Utd í úrslitunum. Sigur myndi náttúrulega nánast réttlæta allar hörmungar heimsins en tap myndi þýða mánaðar þunglyndi og ég má ekki við því í júní mánuði þegar ég á að vera að undirbúa mig fyrir Korfu.
Best að fara í bólið núna.
Tuesday, April 10, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment