Þetta er held ég í fyrsta skipti sem ég blogga undir áhrifum áfengis.
Tónleikarnir í orgelprojectinu voru í kvöld. Þeir tókust ágætlega. Kiggsaði reyndar eins og ég fengi borgað fyrir það á einni sforsando nótunni.
Af tónleikunum lá leiðin beint á Solo og þaðan á Lusthof. Á heimleiðinni kom ég svo við á einu áthúsinu og keypti mér hamborgara og franskar.
Skólinn er lokaður á morgun af trúarlegum ástæðum.
Held ég hafi móðgað Lauru dáldið í kvöld. Hún var eitthvað að strjúka hendinni minni og ég kippti að mér hendinni og sagði ój. Allt í gamni gert að sjálfsögðu. Er samt ekki vanur svona vinahótum af hálfu stelpna. Strákar eiga miklu auðveldara með að strjúka manni. Stelpurnar eitthvað feimnar.
Kenneth kom með enn eitt deitið á Solo. Flott stelpa með guðdómlegan afturenda og með heilann í lagi.
Varð vís að smá misskilningi. Kenneth var eitthvað að kommenta um hvalveiðar Íslendinga og sagði eitthvað um achtpunt, veit ekkert hvernig það er skrifað, sem á að þýða skutull. Mér heyrðist hann segja eitthvað pung. Þannig að ég spurði af þvílíkri einlægni. "Are you asking about the hairs of my balls?" Ég hélt að Kenneth myndi deyja, þvílíkt gat hann hlegið. Loes var samt ekki skemmt enda rammkaþólsk.
Æ, hún Loes er samt svo yndisleg þrátt fyrir þessa kaþólsku. Hún allavega hefur bros sem getur brætt ísklump á Vatnajökli. Hana skortir bara smá sjálfstraust.
Fór í undirleikstíma í dag. Elizabeth sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem hún heyrði mig spila frá hjartanu. Mig langaði að segja, takk sömuleiðis, en hætti við. Kemur mér alltaf á óvart hvað músíkalítetið er skrýtið í þessu landi.
Ætla að horfa á South Park núna,
góðan dag.
Friday, April 6, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ég vildi að ég gæti bloggað svona drukkinn
Post a Comment