Það ætlar að haldast sú venja að ég fái flensu á ca. 3ja mánaða fresti. Dagurinn í gær var mjög erfiður. 2 flug fóru gjörsamlega með eyrun í mér og er ég enn ekki kominn með fulla heyrn. Það var reyndar fínt að kíkja aðeins til kaupmannahafnar en verkfall SAS manna hafði samt þau áhrif að flugstöðin var útúr troðin og engin sæti að fá.
Ég var í rúminu til hádegis í dag. Vaknaði samt tiltölulega snemma eða klukkan hálf 7 að staðartíma. Þegar ég vaknaði var ég með verki í munninum vegna skorts á vökva. Ég fór beint inní eldhús og drakk nærri lítra af vatni í einum teyg.
Það er heitt í Amsterdam núna. Stuttklæða veður, allavega fyrir Íslending. Það var líka heitt í nótt. Guð minn góður hvað ég svitnaði mikið. Það hefði verið hægt að vinda lakið og sjá litlu þorpi í Afríku fyrir drykkjarvatni í hálfan dag.
Ég fór útí búð áðan og keypti mikið af vatni. Ég nenni ekki að vera veikur mikið lengur þannig að ég ætla að reyna að drekkja veikindunum.
Talandi um drykki. Ég steingleymdi að kaupa Tópas í fríhöfninni. Ég var frekar seinna á ferðinni en ég er vanur og þegar ég var búinn að tékka mig inn þá var byrjað að hleypa inní vélina.
Mér tókst að sofa nokkuð vel í vélinni. En síðasti hálftíminn var sem miðalda píningar aðferð. Vegna flensunnar þá voru eyrun mjög viðkvæm fyrir þrýstingsbreytingunum sem urðu þegar vélin lækkaði flugið. Ég var enn með verki í eyrunum þegar ég fór í seinna flugið sem var rúmum 5 klst síðar og það jók á sársaukann og til að toppa allt þá tapaði Liverpool í meistaradeildinni í gærkvöldi.
Á morgun fer ég í tíma til Ivan og mun ég fara þó að ég muni enn finna fyrir veikindunum.
Ætla að halda áfram að lesa núna. Er á kafi í bókinni Við enda Hringsins eftir Tom Egeland. Bók í anda Da Vinci lykilsins.
Ble
Thursday, April 26, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment