Er með höfuðverk, sem er kanski ekki frásögufærandi nema af þeim sökum að hann hélt fyrir mér vöku í nótt. Slökkti öll ljós klukkan hálf 3. Kveikti þau síðan klukkan hálf 7. Kannski sofnaði ég? Það getur vel verið. Er allavega nokkuð hress miðað við lítinn svefn og mikinn höfuðverk.
Undirleikstími eftir fjóra og hálfa klukkustund. Matarboð hjá Rúnu í kvöld. Get æft mig heima í dag. Sem þýðir að ég get spilað á altinn. Er orðinn nett stressaður fyrir Beethoven 5. Það er ekki þægilegt að fá eina æfingu fyrir tvenna tónleika. Ég á nú samt vonandi eftir að sofa vel næstu nótt. Oft þarf drastískar breytingar til að lagfæra þennan blessaða sólahring hjá mér.
Bakaríið opnar eftir 20 mín. Er orðinn frekar svangur. Þarf örugglega á kóki að halda. Eða Red Bull. Hef ekki séð Magic drykkinn hér í Hollandi. Örugglega bannaður hérna, eins og blái ópalinn sem er víst hætt að framleiða.
Ég og André spiluðum nokkra Bach kóralla í gærkvöldi til að spila okkur niður. Skiptumst á að spila bassa og sópran eftir hendingum, í upprunalegri áttund. Fór upp á tvístrikað g. Nótan var aðeins of há hjá mér, eða það sagði André allavega. Erum samt vanir að koma með svona asnakomment þegar spilað er í extreme tónsviðum.
Úff, ég er með svefnúlf. Þetta er örugglega mjög samhengislaus bloggfærsla.
Ætla í sturtu
Thursday, April 12, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Færðu ekki bara höfuðverk af þessum háu nótum? - Svefnmálum þarf að taka á af FESTU!
Post a Comment