Sunday, April 8, 2007

Páskadagur

Ég var með smá samviskubit eftir átveisluna í gærkvöldi þannig að ég fór út að skokka í morgun, klukkan 5. Það var þvílíkt hressandi. Ég skokkaði alveg þangað til ég sprakk og þá hafði ég varla hugmynd um hvar ég var niðurkominn í Amsterdam. Tók mig rúman hálftíma að labba aftur heim. Teygði mig síðan vel þegar heim var komið og fór í frábæra sturtu. Um klukkan hálf 7 setti ég Fellowship of the Ring í gang og horfði á þangað til ég gat ekki haldið mér vakandi lengur. Vaknaði síðan úthvíldur klukkan 15:00.

Það var ekkert til að borða þannig að ég rölti niður í bæ í góða veðrinu og gat ekki stillt mig um að kíkja í plötubúðina Fame á kalvinstraat. Það var útsala í gangi og ég missti mig. Keypti jafnstillta píanóið hefti 1 og 2 með Glenn Gould. 3ja diska pakka með Jussi Björling. Mozart flautuverk með Sharon Bezali og DVD með Bernard Haitink að stjórna Mahler 1 og 2 með Berlínar Fílharmóníunni.

Og nú drekk ég ávaxtahristing sem ég bjó mér til. Eplasafi, ein appelsína, ein pera og eitt epli. Sett í blandara og beðið eftir því að það verði eins vökvakennt og kostur er.

Ég er nú samt ekki meira hollustufrík en það að ég er með kexpakka við hliðina á mér. Svona til vonar og vara ef ég skyldi fá ávaxtasjokk.

Upp á síðkastið er ég búinn að drekka heil ósköp af vatni. Hef örugglega farið upp í ca. 6 lítra á dag. Það er rosalega gott fyrir brassleikara. Maður er jú að anda frá sér vatnsgufu í marga klukkutíma á dag.

Þetta er mjög skrýtin páskadagur. Það er ekkert sem gefur til kynna að það séu páskar. 17 stiga hiti úti og sól. Engin spilamennska með LR á Landspítalanum. Engar útvarpsfréttir um snjóskort á skíðasvæðum landsins.

Jæja, svona er lífið.

No comments: