Horfði á Reading-Liverpool í gegnum skype með pabba í dag. Liverpool vann 2-1. Þeir voru nú ekki að spila mjög vel. Er búinn að spila þónokkuð í dag á bæði hljóðfærin. Háa f-ið kemur í ca. 90% tilvika þegar ég er búinn að hita mig vel upp. Þá er ég að tala um altinn.
Á eftir er leikur Barcelona og Zaragoza. Ætla á barinn að fylgjast með. Eiður fær væntanlega að byrja inná. Hann er búinn að standa sig vel í undanförnum leikjum þegar hann hefur fengið að spreyta sig.
Horfði á heimildarmynd á youtube í gærkvöldi um Glenn Gould. Mjög fræðandi. Ég man enn eftir því þegar pabbi leyfði mér að hlusta á Goldberg tilbrigðin með honum, seinni upptökuna. Eitthvað sem ég mun muna eftir alla tíð.
Er að hlusta á annan kanadískan virtúós núna. Alain Trudel að spila klassísku altbásúnu konsertanna.
Náði í fötin í hreinsun í dag. Þarf að eignast fleiri sokka.
Er orðinn óleyfilega svangur núna. Þarf víst að borða aðeins meira en ég held. 2 eggjabrauð nægja víst ekki í 6 klst.
Það er svo skemmtilegt að hlusta á Alain Trudel. Hann getur gjörsamlega valið úr litum í tóninum. Hann hljómar ekki alltaf eins, eins og sumir. Nefni engin nöfn.
Gefst upp, þarf að fá mér að borða.
Bless
Saturday, April 7, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment