Tuesday, October 2, 2007

Barcissimo

Pabbi fór til síns heima í dag. Það var mjög gaman að fá hann í heimsókn og ekki hægt að segja annað en að heimilið líti mun betur út eftir að hann kom. Takk fyrir það pabbi.

Fór í skólann í dag um hádegið. Fékk ekki herbergi fyrr en klukkan 17:51. Var bara þangað til eitthvað að dandalast á bókasafninu hlustandi á mismunandi tónlist og kláraði að greina Schubert sönglagið. Síðan var ég líka ansi mikið bara á netinu. Dáldið skrýtið að vera í skólanum og fá ekki herbergi. En þar sem það tekur 40 mínútur að fara heim þá var ég ekkert að því.

Í kvöld horfði ég svo á Barcelona vinna Stuttgart í meistaradeildinni. Ronaldinho kom aftur inn í liðið eftir meiðsli. Barca byrjaði leikinn ágætlega en síðan kom kafli þar sem var greinilegt að þeir söknuðu Toure, jafnvægið í liðinu var ekki að gera sig. Síðari hálfleikur var miklu betri, sérstaklega eftir markið. Þá bara héldu Barca boltanum og hefðu getað skorað mun fleiri mörk.

Lokaniðurstaða: Stuttgart 0 - Barcelona 2 (Puyol) (Messi)

Á morgun er svo Liverpool. Er ekki alveg búinn að ákveða hvort ég fari á barinn þá. Fer í tíma eldsnemma á morgun og verð í skólanum alveg til 5. Kemur í ljós hvort ég hafi orku í mikið lengri dag.

Megnið af brassnemendum skólans er í þýskalandi. Brassgrúppu skólans var boðið að spila á Brassfestivalinu í Sauerland. Stærsta brass festival í Evrópu. Margir sem ekki eru í bandinu fóru líka til að taka þátt í masterklössum. Þar sem ég er á leiðnni til Osló í næstu viku ákvað ég að sitja heima.

No comments: