Monday, October 15, 2007

Kominn heim til Diemen

Þá er ég kominn heim. Ferðin til Osló var hreint út sagt æðisleg. Gaman að heimsækja þjóðfélag sem er svona framarlega á merinni. Það heillaði mig hvað allt gekk einhvern veginn sinn gang án vesens, þjóðarsporti Hollendinga.

Ég var ansi klár í fríhöfninni áðan og eyddi nærri því öllum norsku krónunum sem ég var búinn að sanka að mér. Keypti mér Casino Royal og fyrirmyndar viskí sem ég á reyndar eftir að smakka. Rauða gæsin heitir það ef ég man rétt.

Ég var að enda við að horfa á Casino Royal. Þvílík gæðamynd. Að mínu mati besta Bond myndin.

Eitt kvót:

Bond: "I think I´ll call this Vesper."
Vesper: "Is it because of the bitter aftertaste?"
Bond: "No, because after you taste it you don´t want to drink anything else."

Talandi um pick-up línu dauðans.

Verða að stela henni við tækifæri.

En tjá

1 comment:

Anonymous said...

Good night sweetheart!