Wednesday, October 10, 2007

Tónlist læknar allt

Eins og þeir sem lásu blogg mitt fyrr í dag þá var ég hálf slappur í allan dag. Nú er ég hins vegar ofur hress.

Því þakka ég Beethoven og þá sérstaklega 3. sinfóníu hans í flutningi Gewandhausorchester Leipzig með Kurt Masur haldandi á sprotanum.

Ég meikaði reyndar ekki að hlusta á 4. kaflann. Þá hefði ég nú endanlega misst mig í æsingnum.

Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna mun einmitt spila Hetjusinfóníuna á sömu tónleikum og ég mun reyna að rata í gegnum völundarhús Larsson.

Það er kominn mikill spenningur í mig varðandi morgundaginn. Á eftir að gera fullt af hlutum. Eins og að prenta út flugmiðana mína. Fyrsta verk eftir að ég kem aftur heim er að kaupa mér prentara. Það gengur ekki lengur að vera bundinn við það að þurfa að fara í skólann til að prenta út eina blaðsíðu.

Ég sem sagt fór ekki í skólann í dag. Ef ég hefði farið hefði mér örugglega leiðst mikið því ekki hafði ég orku í að gera nokkurn skapaðan hlut. Nú er ég hins vegar fær í flestan sjó.

Ég var að fatta það að ég hef tíma til að koma aftur heim úr skólanum áður en ég þarf að fara út á flugvöll. Það er gott. Þá get ég hjólað í skólann og þarf ekki að drattast þangað í lest og sporvagn með ferðatöskuna.

En nú er það meiri tónlist,

No comments: