Wednesday, October 24, 2007

Guð blessi sjónvarpið

Vaknaði í morgun með hita og hálsbólgu. Náði nú sem betur fer að sofna aftur og svaf til ca. 12. Hef getað gert lítið annað en að horfa á sjónvarpið og þvælast um netið. Þvílík úrvalsstöð er National Geographic. Endalaust getur maður horft á höfrunga drepa makríl og á loftsteina lenda á Júpíter.

Á myndina sem er efst í myndasyrpunni sem ég setti inná síðuna áðan vantar Daan, hann var veikur. Annars eru allir á svæðinu. Vinstri til hægri: Johan de Vijs, Maarten Lowel, Ari Hróðmarsson, Thomas Horch, Raymond Munnecom, Kenneth Zandbergen og Hector Jesus.

Ég keypti tvenna diska með Thomas Horch, þeir eru af hæsta gæðaflokki. Tóngæðin framúrskarandi.

Er orðinn ógnarsvangur, þarf að panta mér pizzu. Kemst ekki útúr húsi eins og stendur.

Hitti á André Douw, fyrrum greiningarkennara minn, í gær. Þurfti endilega að asna því út úr mér að ég hafði samið eitt lítið verk fyrir básúnu og píanó í haustfríinu. Hann vill endilega að ég sýni honum það. Veit nú ekki hvort ég leggi í það. Föður mínum fannst verkið "sætt".

En nú þarf ég að hætta.

2 comments:

Anonymous said...

Guð blessi þig - og góðan bata!

Anonymous said...

taktu því rólega kall, við tökum Arsenal á sunnudaginn, farðu vel með þig þangað til, svei mér þá ef Barcelona er ekki strax á eftir