Dagurinn í dag var bara ansi fínn. Byrjaði náttúrulega á því að ég fór á fætur í kringum hádegi og sturtaði mig, gerði morgunleikfimina og hjólaði svo í skólann.
Þar tók við undirleikstími sem var bara fínn og eftir hann tók ég góða æfingarispu.
Klukkan korter í sex hitti ég svo Sveinba og Korku við lestarstöðina en ég var búinn að lofa því að hjálpa Sveinba við smá upptökur.
Korka spilaði fyrst í upptökunum og skemmti ég mér konunglega við að vera aðstöðarprodusent. Rétt í þann mund sem Korka var að klára síðustu tökuna sína gaf tölvan sem sýndi nóturnar upp öndina.
Ég þurfti sem sagt að taka upp mínar tökur nótnalaust og reiða mig alfarið á heyrnina. Jú það vildi nú svo skemmtilega til að þessir spunataktar mínir þrælpössuðu við tónsmíðina og tónskáldið var hið ánægðasta.
Eftir þessa skemmtilegu vinnu var ég inspíreraður og fór niður í skóla og æfði mig meira. Þegar skólinn lokaði fór ég svo með Mörtu selló á Solo og fengum við okkur nokkra bjóra. Hún er spænsk þannig að mér tókst að ganga alveg fram af henni með sögum af mínum spænku lærdómi.
Ég fygldi stelpunni svo heim og hjólaði svo að lokum heim til Diemen og setti persónulegt hraðamet. Ég var í 37 mínútur að hjóla frá heimili Mörtu og heim til mín. Það eru tæpir 9 km. Ég er yfirleitt um 40 mínútur að hjóla í og úr skólanum og það eru tæpir 7. Verð náttúrulega að taka það fram að ég var dáldið í glasi og var nú ekkert mikið að hugsa út í það að sleppa við það að svitna. Er enn svitnandi og er búinn að vera heima í 20 mínútur.
Svona á að gera þetta.
Friday, October 5, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
það er ekki amalegt lífið hjá sumum
Hvað finnst þér með þessa Marion? Brýtur nauðsyn lög?
Post a Comment