Fór í gærkvöld á tónleika með World Youth Orchestra en Kostas vinur minn var að spila með, reyndar var Marta að spila með líka en hana sé ég nú oftar en hann Kostas. Hitti Primo og nokkra Rotterdam bræður á tónleikunum líka, það var fínt.
Var mættur í skólann fyrir opnun í gær og tók góða rispu frá 8 til 10:30 en þá var komið að mínum fyrsta tíma í Advanced Rythm sem byggist á indverska rytmakerfinu. 2ja klukkutíma maraþon og krafist er mikillar heimavinnu til að eiga rétt á að halda áfram í tímunum. Er mjög spenntur fyrir þessu og ætti ekki að vera mikið mál að eyða 20-30 mínútum hvern dag í að þjálfa þessa rytma.
Er reyndar hundfúll yfir því að vera vaknaður svona snemma. Vaknaði fyrir klukkan 7, algjörlega hjálparlaust, og bókstaflega ekkert að gera nema að lesa sónötukenningar, eitthvað sem er nú ekkert rosalega þægilegt þegar maður er ekki almennilega vaknaður. Mér bara tókst ekki að sofna aftur, hefði nú verið þægilegt að sofa 2-3 klst í viðbót, en lífið er greinilega ekki eins og maður vill hafa það alltaf.
Hjólið mitt verður tilbúið síðar í dag, klukkan 2 til að vera nákvæmur. Ætla ekki að heiman fyrr en um það leyti. Ætla nefnilega að horfa á Barcelona-Sevilla í kvöld og þá gengur ekki að vera búinn að vera í skólanum frá því eldsnemma um morgun, ég verð að hafa einhverja orku eftir. Hef misst af síðustu 2 Barcelona leikjum, og er kominn með all mikil fráhvarfseinkenni. Það er bara ekkert sem kemur í staðinn fyrir að sjá góðan fótbolta.
Grímur lenti í því að fá botnlangakast og fór í uppskurð á laugardag og þarf að vera aðeins lengur á heimalandinu af þeim sökum. Það er nú tómlegt hérna án hans. Maður talar nú ekki mikið af íslensku nema við hann, hitti reyndar Hjalta í gær. Var eitthvað að dunda í Jordaan og ákvað bara að kíkja á hann, Korka er að túra með NJO þannig að hann var einn í kotinu.
Úff, hvað mér leiðist. Ekkert hægt að gera af viti svona snemma dags. Ætla að leggjast uppí rúm með sónötukenningarnar og reyna að sofna eitthvað, annars verður þolraun að horfa á leikinn. Hvað þá að hjóla heim eftir hann.
Tuesday, January 15, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Hvernig er heimavinna í indverskum rytma?
Post a Comment