Thursday, January 24, 2008

Stóðst prófið

Nú er þungu fargi af mér létt, stóðst tækniprófið og þarf ekki að spila hljómsveitarúrdrætti fyrr en eftir ár. Ég man nú mest lítið eftir sjálfu prófinu, var dáldið að berjast við að sofna ekki. Mér finnst svo óttalega leiðinlegt að spila svona tæknidót.

Hápunktur dagsins var svo í Low Brass tímanum, en við vorum að undirbúa performance á opna degi skólans nú á laugardag. Við munum spila 2 verk eftir Bruckner og ég mun stjórna öðru þeirra. Það verk, Ave Maria, var gjörsamlega ómögulegt að spila án stjórnanda. Ég var ákjósanlegasti stjórnandinn á staðnum þannig að ég tók það að mér. Þvílík hamingja. Þurfa ekkert að hugsa um eigið varaúthald ;)

Það kom strákunum dáldið mikið á óvart hvað ég var skýr í öllu. Ég var nú dáldið smeykur við þetta, hef ekki stjórnað í bráðum 2 ár. En maður gleymir aldrei að hjóla, og þetta var fljótt að rifjast upp aftur. Það auvitað bætti enn á álagið að ég var að stjórna strákum sem eru betri básúnuleikarar en ég, en það þurfa allir stjórnendur að venjast.

Var rétt í þessu að fá heillaóska sms frá Ivan. Johan sagði honum víst frá æfingunni sem við höfðum áðan.

Hjólið mitt féll í sundur í dag. Var á mikilli ferð þegar vinstri pedallinn flaug af hjólinu. Tókst með naumindum að halda mér á baki. Var með básúnuna á öxlinni þannig að það hefði verið mjög slæmt að detta, sérstaklega á prófdegi. Fann pedalinn eftir smá leit og læsti hjólið við Amstel stöðina og tók tramma í skólann.

Vegna hjólamissisins missti ég af tíma sem ég var búinn að panta hjá fjármálastjórn skólans, ég hringdi þangað og var sagt að ég mætti koma hvenær sem væri á mánudaginn. Fæ þá loksins lánasjóðsplagg eitt sem er búið að liggja á mér eins og offitu mara í nokkrar vikur.

Fór með Maarten á McDonalds í kvöld, til að fagna góðu gengi í prófinu. Er farinn að verða uppiskroppa með peninga þannig að McDonalds var það flottasta sem ég hafði efni á. Maginn mótmælti heiftuglega þegar ég kom loksins heim.

Síðar

2 comments:

Anonymous said...

Dirigent!

Anonymous said...

vona að maginn komist í lag, spurning hvort burger king sé ekki málið