Saturday, January 19, 2008

Varir í verkfall

Undanfarna daga hef ég spilað ansi mikið til að undirbúa mig eins vel og mögulegt er fyrir tækniprófið sem fer fram á fimmtudaginn. Í gær gáfust svo varirnar upp og í dag eru þær enn að jafna sig, neyðist til að taka mér dags frí.

Við venjulegan æfingatíma bættist við hljómsveitartónbókmenntatími þar sem við fórum í gegnum fimmtu sinfóníu Mahler með brass deildinni. Ég spilaði fyrstu básúnu, í fyrsta skipti síðan ég byrjaði í skólanum hérna. Það var gaman en líka krefjandi, þegar maður spilar aldrei fyrstu básúnu þá aðlagast varirnar meira því að spila neðar en ég stóð mig bara nokkuð vel. Ivan fannst ég líka vera mjög góður leiðari.

Nú hins vegar blasir við dagur fullur af aðgerðarleysi. Þarf reyndar að skreppa útí búð og kaupa smá til heimilisins. Ekki væri slæmt að taka dáldið til, hef verið lítið heima upp á síðkastið og tiltektin skiljanlega aðeins setið á hakanum.

Er kominn á þriðju seríu af Voyager. Algjör snilld þessir þættir, næ alveg jafn mikilli tengingu við þá og The Next Generation. Held samt að ég lifi mig aðeins of mikið inní þá. Persónur úr þáttunum eru virkir þátttakendur í draumum mínum. Um daginn var ég til dæmis að kenna lækninum á Voyager að spila á básúnu, gekk ekkert allt of vel þar sem hann þurfti að greina allt niður í smæstu einingar. Enda er hann tölvukeyrt forrit.

Það er mjög blautt veður í Amsterdam núna. Stanslaus rigning síðan í gær, rigning kannski orðum aukið, úði er betri lýsing.

Er búinn að reyna að drekka Coca-Cola zero síðustu 3 daga í stað hefðbundins kóks. Til að draga aðeins úr sykurneyslunni og koffínfíkninni. Það er kannski best hægt að líkja því við að vera í eyðimörk og sjá vin en þegar maður kemur að henni finnur maður út að vinin var ekki til staðar. Veit ekki hvort ég haldi þetta út mikið lengur. Til hvers að drekka eitthvað ef maður fær ekkert úr úr því? Ekki drekkur maður kók vegna bragðsins.

Jæja, ætla að gera eitthvað annað en að blogga, Star Trek bíður.

1 comment:

Anonymous said...

Zero er málið!