Jæja, þá er Marta loks orðin formlegur íbúi hér á Julianaplantsoen. Grímur fær lyklavöld að Bloemgracht núna á miðvikudaginn þannig að hann gistir hér í stofunni þangað til.
Við pöntuðum okkur pizzu í tilefni dagsins og horfðum á Harry Potter 5 með Grími og Fraukje, held að það sé skrifað þannig. Fraukje er klarinettunemandi í skólanum og hún býr hérna í Diemen, ég og Marta hittum hana í lestinni og ákváðum að bjóða henni að snæða með okkur og glápa á ræmu. Verð samt að játa að helsta hvatningin var sú að fá smá hjálp við að bera dótið. Því miður var góssið of þungt fyrir hana þannig að ég þurfti að halda áfram að bera herlegheitin, þakkaði æðri máttarvöldum fyrir það að spila ekki á hljóðfæri þar sem fínhreyfingar fingra skipta höfuðmáli.
Ekkert meira markvert gerðist í dag.
Sunday, March 30, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Á alveg að sleppa því að mæta á básúnuviku á Íslandi sbr. Morgunblaðið í dag? - HH
Post a Comment