Nú er að byrja nýtt tímabil í mínu lífi. Grímur fékk inní í nýrri íbúð í miðbæ Amsterdam og er að flytja þangað. Í stað hans kemur Marta vinkona mín þannig að ég fæ smá sárabót.
Að hafa Grím staðsettan niður í miðbæ verður ansi þægilegt þar sem maður hefur loks tækifæri til þess að fara í partý án þess að hafa of miklar áhyggjur af að ná almenningssamgöngunum.
Það að Marta ætlar að flytja inn til mín er líka mjög ánægjulegt, við höfum orðið nánari vinir undanfarið og nú getum við eytt meiri tíma saman. Það kemur svo í ljós hvort við munum enda á því að hata hvort annað eða að elska hvort annað. Enginn veit ævi sína fyrr en öll er.
Ég held barasta að ég sé búinn með Mozart greiningarverkefnið. Ég á stundum í erfiðleikum með að hætta að gera svona verkefni en þetta var komið gott. Það má vissulega alltaf bæta einhverju við en þá er svo auðvelt að gleyma sér í einhverjum pælingum og missa sjónar á takmarki verkefnisins. Ég hef uppfyllt þeim kröfum sem gerðar voru til mín og vel það og kannski spurning um að svona einu sinni eiga einhverja orku eftir fyrir önnur störf.
Nú þarf ég til dæmis að klára Josquin greiningarverkefnið við fyrsta tækifæri. En það verður ekki í nótt. Nú ætla ég bara að kíkja á Star Trek með góðri samvisku og svo leggja mig smá áður en ég fer í skólann.
Wednesday, March 26, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Það er nú sjónarsviptir að Grími! -
Post a Comment