Monday, March 10, 2008

Kammerpróf

Annað kvöld þarf ég að taka próf í kammermúsík, auðvitað skelfileg tímasetning þar sem seinni leikur Liverpool og Inter fer fram á sama tíma. Reyndar byrjar leikurinn ekki fyrr en að verða níu þannig að hugsanlega get ég náð honum. Ég nenni samt ekki að fara á bar, vona að ég verði heppinn og að hann verði sýndur í sjónvarpinu.

Við vorum með síðustu æfinguna í dag í kvintetnum, þetta er farið að sánda bara nokkuð vel hjá okkur. Ég var samt í einhverju bölvuðu óstuði á æfingunni, er reyndar búinn að vera í óstuði í allan dag. Svaf illa í nótt og ekki nógu lengi. En ég ætti að vera í fínu formi annað kvöld.

Hugsanlega situr ennþá í mér ósigur Barcelona í gærkvöld. Enn verra finnst mér samt hvernig fjölmiðlarnir tala um leikinn. Sérstaklega hvernig talað er um Ronaldinho. Hann og Iniesta voru yfirburðarleikmenn hjá Barcelona og um leið og Rijkard setti Ronaldinho yfir á vinstri vænginn þá fór allt að ganga upp miklu betur. Vissulega voru sumir leikmenn að spila ekkert sérlega vel, en þetta var ekki spurning um einstaka leikmenn, taktíkin gekk engan veginn upp í fyrri hálfleik.

Það verður að hafa mann sem bíður úti á sitthvorum kantinum. Það er ekki alltaf hægt að bíða eftir einhverju frábæru einstaklingsframtaki. Mark Barcelona var frábær liðsspilamennska og Ronaldinho arkitektinn að því með mikilli hjálp frá Iniesta, Xavi batt svo endahnútinn á sóknina eins og hann er búinn að gera í undanförnum leikjum.

Æi, ég verð bara fúlli og fúlli eftir því sem ég hugsa meira um þennan leik. Verð að finna mér eitthvað að gera sem tekur hugann víðsfjarri bæði tónlist og fótbolta.

2 comments:

Anonymous said...

Styttist í páskana!- Gangi þér vel í prófinu.

Anonymous said...

er það ekki bara atar trek sem bjargar svona málum