Tuesday, April 3, 2007

0-3

Vegna tónfunds brassdeildarinnar gat ég ekki horft á leik PSV og Liverpool. Það gleður mig óneitanlega að Liverpool fór af hólmi með sannfærandi sigur :)

Ég var nærri því of seinn á æfingu í dag í Orgel projectinu. Það var fyrsta tutti æfing. Fjórir 7 manna blásarahópar og 3 orgel og einn stjórnandi og eitt tónskáld. Ég hafði stengleymt að æfingin væri klukkan 4, algjör heppni að ég skyldi kíkja í dagbókina mína. Þetta var fyrsta æfingin þar sem tónskáldið kom. Hann flutti í byrjun æfingar smá fyrirlestur um verkið sem hann tileinkar Iannis Xenakis. Fyrirlesturinn staðfesti þá kenningu mína að tónskáldið hafði ekki hugmynd um hvernig væri spilað á hljóðfæri. Tölum ekki meira um það.

Að lokinni æfingu var hjólað beint í Bachzaal með viðkomu í Albert Heijn. Tónfundurinn byrjaði klukkan hálf átta en ég var næst síðastur á dagskrá. Ég spilaði fyrsta kaflann í Gröndahl og gekk það bara nokkuð vel var mér sagt. Ég missti eiginlega af sjálfum mér, einbeitti mér bara að því að spila verkið og gaf mér ekki tíma til að hlusta á útkomuna. Maður má ekki dvelja í fortíðinni.

Að tónfundinum loknum spjallaði ég aðeins við Raymond og hann kom með ýmis komment. Öll voru þau jákvæð og hann sagðist vera sérstaklega ánægður með það að þegar ég spilaði þá væri ég inní tónlistinni. "You just do what the music needs, I like that."

Þessu lauk ekki fyrr en um klukkan 10 og þá fór ég beint niður í skóla til þess að spila mig aðeins niður. Spilaði fúgettuna úr BACH fantasíunni fyrir André og hann var ánægður með það sem hann heyrði. Þá lá leiðin í Lusthof þar sem André og Kenneth settu held ég nýtt met í lágkúrulegum klámbrandörum.

Og nú er ég kominn heim. Nýkominn úr sturtu með heitt te og súkkulaðibitakökur.

Sofið vel.

4 comments:

Anonymous said...

Langar svolítið að heyra hvernig met í lágkúrulegum klámbröndurum hljómar

Anonymous said...

Koddu með etta kaffeeee!

Anonymous said...

Hvað er þessi litli bróðir þinn að ibba sig?

Anonymous said...

fuck off