Mér tókst að vakna fyrir hádegi í dag. Meira að segja fyrir klukkan 11. Ástæðan er sú að Jeroen, samnemandi minn hringdi. Næstu 2 vikur verða æfingar og tónleikar hjá hljómsveit skólans, undir stjórn Franz Bruggen. Schubert 8 og 9 á efnisskránni. Jeroen átti að spila í projectinu en hann getur það ekki, þannig að hann snéri sér til mín. Ég mun ekki getað spilað á tónleikunum en ég leysi hann af í þessari viku. 3 æfingar. 2 brass æfingar og á föstudag tutti æfing frá 10 til 17. Þetta grefur aðeins undir áætlunum mínum þessa vikuna, en ég ætlaði mér að ná miklum tíma á altinn. Verð nú að hundskast á lappir fyrir allar aldir og vera byrjaður að spila klukkan 9 alla dagana til að ég nái ætluðum tímafjölda.
Annar í páskum þýðir að ruslamennirnir eru í fríi sem þýðir að ruslið er yfirfljótandi hér á Bloemgracht.
Það verður spennandi að sjá hvort ég geti haldið mér vakandi í allan dag og vonandi sofnað á skikkanlegum tíma í kvöld.
Í gærkvöldi horfði ég á DVD diskinn sem ég keypti í gær, í einni lotu. Mahler 1 og 2 í röð. Samtals um 140 mínútur af tónlist. Engin furða að mér tókst ekki að sofna strax á eftir eins og ég hafði dreymt um að gera. Lá andvaka í um 2klst með Mahler klingjandi í hverri taug í líkamanum. Um hálf 2 gafst ég upp og horfði á restina af fyrri disk fyrsta hluta lengri útgáfunnar af Lord of the Rings. Held mér hafi tekist að sofna um klukkan 4.
Jæja, ætla að gera teygjurna mínar.
Monday, April 9, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Ohhh - þetta er skemmtilegt. Verst að þú getir ekki verið með til enda.
Gangi þér vel að halda þér vakandi í dag - og að losna við ruslið!
Hljómar eins og draumaprójektið
Post a Comment