Í gærkvöldi var matarboð heima hjá Rúnu. Á borðum voru eingöngu grænmetisréttir og það kom mér á óvart hvað þetta var gott. Í forrét var grænmetissúpa sem var alveg himnesk og í aðalrétt var svo grænmetis lasagna. Það var mjög gott og verður að segja að það skákaði öllum þeim grænmetis lasagnönum sem ég hef áður fengið. Í eftirrétt voru svo ferskir ávextir og mjög mjög dökkt súkkulaði. Namm namm.
Í morgun var tími hjá Ivan. 3 vikur síðan síðasti tími var. Þetta var einn besti tími sem ég hef fengið hjá honum. Tíminn byrjaði á því að hann leyfði mér að heyra nokkrar upptökur af sjálfum sér. Þar á meðal bút úr Derek Bourgeois konsertnum. Ég fékk vatn í munninn þegar ég hlustaði á þetta.
Þá var komið að mér að spila. Við byrjuðum á BACH fantasíunni og í meginatriðum var Ivan mjög sáttur við þær framfarir sem ég hafði sýnt hjá honum. Sérstaklega með tóninn. Hann sagði mér samt að passa mig á einu. Tónlistargeta mín væri svo langt á undan tæknilegri getu að ég ætti auðvelt með að fljúga um í skýjunum í stað þess að spila bara nóturnar.
Hann sagði frá sjálfum sér. Þegar hann var rúmlega 20 ára þá spilaði hann í masterklass hjá Branimir Slokar. Hann spilaði annan kaflann í Lars-Erik Larson konsertinóinum. Honum fannst eins og hann hefði aldrei spilað jafn músíkalskt eins og þá. Það fyrsta sem Slokar sagði þegar Ivan var búinn að spila var: "This was so unmusical, it was disgusting."
Það er nefnilega þannig þegar maður spilar á hljóðfæri sem eru svona stefnuvirk að músíkalskar hreyfingar skemma fyrir útkomunni. Hreyfingarnar líta samt vel út, þær mega eiga það, en það er það eina sem þær gera.
Lagði mig núna áðan. Fékk enn eina martröðina. Held að ég hafi lent í slagsmálum við draug. Í draumnum lá ég bara í rúmminu og einhver var ofan á mér og hélt hálstaki á mér. Ég sló til draugsins og öskraði á hann, en allt kom fyrir ekki. Þegar ég svo vaknaði var ég með mikinn verk í hægri hendinni og rúmið var komið útá mitt gólf.
4. sinfónía Brahms er í Concertgebouw í kvöld ásamt 1. píanókonsert Beethoven. Held ég skelli mér bara. En nú er það sturta, rakstur og smá æfingatörn.
Lifið heil.
Friday, April 13, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
,,lasagnönum''
Maður er bara alltaf að sjá eitthvað nýtt...
Good to see you are enjoying yourself and keeping busy.
You are doing great!
David
Post a Comment