Nú er að koma kvöld. Klukkan er 10 mínútur yfir 6. Nú er sá tími dagsins liðinn sem ég get leyft mér að spila hér heima. Kannski fyrir bestu, annars freistast ég til að ofgera mér alveg.
Ég er að reyna að ákveða hvað ég eigi að gera af mér í kvöld. Til að losna að fullnustu við veikindin ætla ég að taka því rólega. Ætli ég rölti ekki útá vídjóleigu. Leigi mér 2 myndir og kaupi mér kínverskan mat á bakaleiðinni. Það held ég að hljómi best af þeim hugmyndum sem ég hef fengið.
Þsð er búið að breyta Dam torginu í tívolí. Það er eflaust vegna drottningar afmælisins sem verður á mánudaginn. Persónulega finnst mér þetta hálf skrýtið. Skyggja á höllina með einhverju tívólí. ISS. Ekki myndi maður setja nektarmynd af Hilary Clinton fyrir framan málverkið af Monu Lisu. En Hollendingar eru nú ekki eins og fólk er flest.
Röddin mín er ennþá áttund of há. Það er óþægilegt að tala af venjulegum styrk en ég heyri núna í flestu sem gerist í kringum mig. Ég var byrjaður að brúka varalestur til að bjarga mér frá því að segja of oft HA!?
Evrópska básúnufestivalið er í Rotterdam um næstu helgi. Byrjar á fimmtudag og stendur til sunnudags. Ég ætla að kíkja á það seinni part föstudags og vera þar síðan mest allan laugardaginn. Dagskráin heillar mig ekkert svakalega en hún gæti nú samt verið frábær. Michel Bequet og Jonas Bylund eru helstu klassísku gestirnir. Síðan verða náttúrulega þessir hefðbundnu Hollendingar. Jörgen, Ben van Dijk og Brandt Attema. Ivan mun stjórna á lokatónleikunum þannig að ég held að ég muni neyðast til að mæta.
Ætla að rölta út.
Saturday, April 28, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Njóttu drottningardagsins. Það er aldrei meira fjör í Amsterdam en þá!!!
Post a Comment