Saturday, April 28, 2007

Loksins

Loksins hef ég getað spilað á hljóðfærið. Er búinn að spila nokkur lög í mismunandi tóntegundum og tónhæðum og verð vonandi kominn í fyrra form á þriðjudaginn. Maður verður að byrja rólega.

Það er sama blíðviðrið hérna og undanfarna daga. Sem sagt, aðeins of heitt. Best að vera inni í viftukældu herberginu.

Ég ákvað að sleppa að horfa á Liverpool leikinn þegar ég sá mannmergðina á barnum. Ég hefði þurft að standa einhvers staðar lengst fyrir aftan og svo var ég alls ekki viss um að leikurinn yrði sýndur. Kannski eins gott. Staðan 2-0 fyrir hinum í hálfleik

Ég er búinn að klára bókina sem ég var að lesa. Verð að finna mér eitthvað annað að lesa eða kannski skrifa ég sjálfur einhverja bók.

Er eitthvað hugmyndasnauður núna í þessum hita.

þangað til næst.

1 comment:

Anonymous said...

Skrifaðu bók! - Það er eina vitið drengur.