Sunday, October 28, 2007

Barca gerðu það sem ætlast var til

Stórleikur dagsins var leikur Liverpool-Arsenal. Steven Gerrard kom Liverpool yfir með flottu marki úr aukaspyrnu eftir aðeins 7 mínútur. Næstu 73 fóru í að bíða eftir marki Arsenal. Það kom svo á 80. mínútu, Fabregas að verki. Arsenal er þessa dagana að spila besta fótboltann á Englandi.

Barcelona átti auðveldan leik, á blaðinu, á heimavelli sínum gegn Almeria. Barca hélt boltanum eins og við var að búast en komust aldrei á flug. Aðeins undir lokin lifnaði yfir Barca en ég vil nú kenna þreytu Almeria um en þeir vörðust vel og skynsamlega auk þess að vera skeinuhættir fram á við þegar færi gáfust. Mörkin skoruðu Henry og Messi, Eiður kom inná og stóð sig ágætlega. Maður leiksins: Giovanni.

Þegar ég kom heim eftir fótboltaleikina þá byrjaði ég nú á að elda mér smá tikka masala kjúkling sem ég borðaði svo á meðan ég horfði á Michel Palin´s Europe, frábæran ferðaþátt á BBC. Umfjöllunarefni þáttarins eru austantjaldsþjóðirnar. Í dag var það austur-Þýskaland og Tékkland. Í austur Berlín er kona sem starfrækir hláturs yoga. Á ekkert skilt við yoga annað en það að betrumbæta líf manns. Það sem maður gerir er bara að hlæja í tæpan klukkutíma. Þar sem maður hlær nú venjulega ekki lengur en í nokkrar sekúndur í einu þá er þetta ansi mikið work-out.

Jói Nardeau er að spá í að kíkja í heimsókn þessa viku. Ekkert ákveðið ennþá. Það væri nú gaman að fá hann í heimsókn.

Er eitthvað þreyttur núna. Klukkan samt ekki orðin 12, ætli ég sé að eldast? Jæja, fer að halla mér hvað á hverju.

3 comments:

Anonymous said...

Syfjaður? - Þið sem grædduð heilan klukkutíma á því að fara á vetrartíma ... - Góða nótt!

Anonymous said...

Góðan dag Amsterdam! - Fyrsti vetrardagur var um helgina og hrímhvít jörð í Reykjavík í dag.

Anonymous said...

Ég er nú ad fara til Berlínar á mánudaginn, spurning hvort madur kíki í hlátursjóga!