Sunday, October 21, 2007

Biblían og kommúnistar

Ég brá útaf venju minni í dag og horfði á áttafréttirnar íslensku á rúv í gegnum netið. Það sem stóð uppúr var ný þýðing á biblíunni. Kannski er þýðingin ekki svo stórt mál útaf fyrir sig. Það er löngu kominn tími til að nútímavæða fornt málfar og gera textann aðgengilegri nýjum notendum. Það hins vegar stuðar mig að Krossa-Gunnar skuli fá heila mínútu í fréttum allra landsmanna til að boða út sinn afturhalds öfgaboðskap. Hver hefur áhuga á að vita hvað þessi maður hefur að segja um biblíuna. Gunnar rekur trúarhreyfingu, það er allt annað en þjóðtrú. Biblían var ekki þýdd í þágu trúarhreyfinga heldur í þágu þjóðarinnar. Þjóðin hefur þróast, Gunnar ekki.

Annað sem vakti athygli mína var þing kommúnistaflokksins í Kína. Ég hef nú engan áhuga á kínverskri pólitík en gat ekki annað en undrað mig á því að á þinginu var spiluð rússnesk áróðursmúsík. Það verður að virða arfleið þjóðar sinnar, ekki flytja inn hefðir annarra. Þó að kínverjar hafi innleitt kommúnisma frá Lenin eða Stalin þá er nú algjör óþarfi að innleiða þessa ömurlegu tónlist. Bara mín skoðun. Annars hef ég ekki hugmynd hvaðan fyrstu hugmyndir af kommúnisma komu fram. Satt að segja gæti mér ekki verið meira sama.

Í dag tók ég mér kókbindindi. Ekki að undra þó ég sé gersneyddur allri orku. Ég meira að segja þurfti að leggja mig eftir matinn. Sá dúr varði í tæpar þrjár klukkustundir. Nú væri nú gott að hafa eina 10-11 í nágrenninu. Hollendingar eru ekki búnir að fatta þörfina á sólarhringsverslunum. Það er allavega mikil þörf núna hjá mér.

Ætli ég taki bara ekki eitt LOTR maraþon núna. Allar þrjár myndirnar taka svona ca. 11 klst og þá verður bara orðið tímabært að fara í skólann. Ég ætti kannski frekar að velja mér eitthvað áhorfsefni sem gerir mig syfjaðan. Athuga hvort ég geti séð You´ve got Mail á netinu.

Þangað til næst,

2 comments:

Anonymous said...

he he - skildi sneiðina ;)

Unknown said...

Kommúnismi sem hugtak kom fyrst fram á prenti árid 1848 thegar Karl Marx, sem gjarnan er talinn upphafsmadur stefnunnar, gaf út Kommúnistaávarpid... held ég.