Dagurinn í dag var bara mjög ánægjulegur.
Ég prófaði nýja hjólaleið í dag því ég var að fara í sjómannahúsið. Leiðin heima frá mér og í þá skólabyggingu er ólöglega einföld. Mér tókst að glamra á píanóið í klukkutíma áður en Schubert analísan byrjaði.
Í tímanum í dag fórum við yfir hluta úr messum númer 5 og 6 eftir Schubert. Þvílíkar hljómfræði kúnstir eru fáheyrðar. Schubert tókst á örskömmum tíma að módulera frá F dúr til fís moll. Það er ekki svo erfitt að gera það en hvernig hann gerði það er ótrúlegt. Hann gjörnýtti sér eiginleika stækkaða hljómsins og þríundatengsl svo hefðbundin kadensa var með öllu óþörf.
Eftir tímann fór ég svo niður í aðalbygginguna. Engin herbergi voru til reiðu þannig að ég rölti út á Small Talk og keypti mér svínakjöt í brúnni sósu og kartöflu og rófu stöppu. Gott og orkumikið.
Eftir matinn náði ég 2 góðum æfingalotum á básúnuna og fór svo heim þar sem beið mín bjór í boði feðganna.
Þeir eru að mála herbergi Gríms þannig að þeir krassa í stofunni í nótt. Af tillitsemi við þá verð ég að halda mig innan veggja herbergis míns. Svona mestan hlutann.
Byrjaði að kíkja á 3. kaflann í Larsson konsertnum í dag. Hann liggur ansi vel fyrir mig og greinilegt að ég var búinn að æfa hann vel áður fyrri. 2 ár síðan samt. Gaman að koma aftur að svona verki. Fékk margar skemmtilegar hugmyndir.
En nú er það einhver afþreying af netinu.
Monday, October 8, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
bjór og messa er lífið
Afmælisbarn gærdagsins þakkar fyrir góða kveðju!
Post a Comment