Saturday, October 20, 2007

Kraftaverk

Kraftaverk gerast. Ég eldaði annað kvöldið í röð fyrir sjálfan mig. Í gær var það indverskur kjúklingur en í dag var það steik. Það er bara ansi gaman að elda en ég held samt að til lengri tíma litið sé ódýrara að panta sér pizzu eða borða kebab. Þegar ég versla í matinn þá get ég ekki hætt. Finn mér endalaust eitthvað til að hafa með. Fyrst maður er nú að elda á annað borð þá verður maður að hafa það grand. Úff. Ég er farinn að minna mig á piparsvein sem er kokkur á fínu veitingahúsi. Dýrindis matur sem aðeins einn fær að njóta.

Í dag eftir maraþons æfingasessjón fór ég í bíó. No Reservations með Catherene Zeta Jones og litlu stúlkunni úr Little Miss Sunshine. Einhver þekktur karlkynsleikari líka en man ekki hvað hann heitir. Þetta var bara mjög ánægjuleg mynd. Fjallar einmitt um kokk.

OC serían er að renna sitt skeið á enda. Held það séu í mesta lagi þrír þættir eftir. Verð að finna mér eitthvað annað til að nördast í á meðan. Ég virðist vera dáldið manískur. Finn mér einhvern sjónvarpsþátt og horfi þá á ekkert annað. Les bók eftir rithöfund sem mér líkar við og ég les allar bækur hans. Ég á það til að gleypa í mig allt sem hefur eitthvað að gera með það sem mér líkar. Ég kemst varla í bókabúð án þess til dæmis að kaupa bók um Gustav Mahler. Þegar ég skelli mér í plötubúð kem ég heim með Mahler sinfóníu eða básúnudisk.

Þetta er svo sem gott og blessað svo langt sem það nær. Vandinn er að mér hættir til að yfirfæra þessa maníu mína yfir á manneskjur. Ég yrði örugglega afbragðsfær stalker ef ég myndi leyfa sjálfum mér það.

Það sem ég er víst að reyna segja er það að ef mér líkar vel við eitthvað þá fæ ég það á heilann. Því verð ég að reyna að breyta. Það er nefnilega ekki hægt að vera fagidíót í öllu.

2 comments:

Anonymous said...

það er endurnærandi og uppbyggileg list að elda góðan mat, þeim tíma sem fer í slíka iðju er vel varið

Anonymous said...

Gott hjá þér! - Miðað við fréttir á mbl af ólátum í Amsterdam er best að halda sig heima ...