Thursday, October 25, 2007

Man on the Moon

Deginum varið í veikindi og sjónvarpsgláp í dag sem og í gær. Horfði á Man on the Moon áðan, þvílík snilldarmynd sem hægt er að horfa á aftur og aftur. Túlkun Jim Carrey á grínfrumkvöðlinum Andy Kaufman hefði átt að tryggja honum Óskarsverðlaunin.

Nú er ég hins vegar að hlusta á Sinfóníutónleikana á netinu. Í gangi er Tannhauser forleikur Wagners og básúnustaðurinn er í gangi núna. Kollegar mínir eru að standa sig vel, kannski aðeins of líkir orgeli en flestir stjórnendur biðja um það þannig að ég kenni stjórnandanum um.

Þetta er reyndar stórkostlegt ár hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands hvað varðar einleikaraval. Hvorki meira né minna en 3 brass einleikarar á starfsárinu. Alison Balsom á trompet, Charles Vernon og Alt, Tenor og Bassabásúnu og heimsþekktur hornleikari rekur svo lestina. Þetta ætti að vera fastur liður. Ég get ekki trúað því að fólk nenni endalaust að sjá píanó og fiðluleikara spila sömu gömlu verkin. Slagverk og brass er in núna. Það verður að virða það þegar gullöld hljóðfæra er í gangi.

Ég þarf að finna eitthvað hitastillandi núna.

4 comments:

Anonymous said...

Kona sem bloggar á fossvogskonan.blogspot.com hefur stolið færslu þinni frá 19 okt og póstað henni sem sinni eigin, en yfirfært þannig að hún sé að blogga um mann. Kallar færsluna Slöpp minnir mig. Hún hefur oft stolið frá mér og hættir engu sama hvað ég sendi og bið hana um, ákvað að googla random línur úr öðrum póstum frá henni, og viti menn, allt stolið víðs vegar frá.

Liljurós.

Anonymous said...

hahahaha ég ætla ad opna thannig blogg. Posta bara stolnum bloggum

Anonymous said...

Takk fyrir þessar upplýsingar.

Ég vil nota Gershwin hugmyndafræðina til að gera ekki mál úr þessu.

"Þegar ég heyri eitthvað gott þá stel ég því og nota það í minni eigin tónlist."

Ætli ég bloggi ekki bara svo skemmtilega að annað fólk getur ekki staðist það að eigna sér það.

Harladur minn, ég styð þig!

Anonymous said...

Hæ, þetta er samt pínu klikkað eitthvað. - Góðan bata strákur!