Thursday, January 31, 2008

Tíðindalítið

Held áfram að liggja fyrir. Dreymdi þvílíkt í nótt og held stórlega að ég hafi verið með hitaóráð. Var inn og út úr svefninum í alla nótt. Vaknaði svo við það að Marta hringdi í mig, þvílíkt glöð. Hún var nýbúin að segja upp kærastanum. Hún sagði að ég væri sá fyrsti sem hún léti vita af því. Þvílíkur heiður.

Ronaldinho kemur inní leikmannahóp Barcelona í kvöld á kostnað Eiðs Smára. Get ekki horft á leikinn af heilsufarsástæðum. Nú væri gott að vera með Sýn.

Jæja, verð víst að halda áfram að láta mér leiðast. Hvað er ég að bulla, það er til nóg af Star Trek hérna.

Síðar,

1 comment:

Anonymous said...

Enn tíðindalítið á austurvígstöðvunum?