Á hæðinni fyrir neðan mig eru 2 hundar á meðal íbúa. Þeir hafa þann ósið að gelta á nóttunni. Nú bara veit ég ekki hvernig hollensk lög eru en allavega finnst mér að hundahald ætti að vera bannað í fjölbýlishúsum, það verður þreytandi til lengdar að vakna við gelt á nóttunni.
Þessi blessaða greining mín er undir stanslausri endurskoðun af minni hálfu. Er að lesa mig í gegnum tonn af heimildum sem sumar hverjar eru ekki sammála um ýmis atriði, atriði sem skipta reyndar engu máli ef út í það er farið. En það gerir texta eins og þann sem ég er að skrifa erfiðan í samsetningu, stuttur og hnitmiðaður texti.
Greiningin sjálf er hins vegar góð og gild, enda hef ég frumtextann undir höndum, ekki túlkun einhvers annars. Er búinn að lesa dáldið af greiningum á níunni og það kemur mér mikið að óvart hvað mikill hluti af greiningunum eru symbólískar tengingar við hitt og þetta, hornsóló í byrjun á víst að túlka alpahorn sem berast yfir stórt stöðuvatn og svo framvegis. Svona lýsingar eru kannski skemmtilegar fyrir áhugamenn en skreytingalausar staðreyndir eru gagnlegri hvað mig varðar.
Jæja, ætla að byrja á skýrslu yfir ókláruðu sinfóníuna.
Tuesday, February 12, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment