Ég gerði nú ekkert rosalega mikið í dag, nema að æfa mig smá, horfa á Barcelona kjöldraga Levante, og svo kíkti ég á æfingu með Ungfóníu, og uss, hef ekki heyrt aðra eins spilamennsku í langan tíma. Þvílíkt áhugaleysi einkenndi flesta spilarana að mér varð nærri óglatt. Inná milli var samt fólk sem spilaði eins og englar í samanburði við hina.
Auðvitað er fólk á ýmsum getustigum í hljómsveitinni en það er hægt að fyrirgefa allt ef góður vilji er á bak við. Slæmur spilari með gott viðhorf er betri en virtúós sem er asni. Ekki það að ég sé að kalla spilarana í hljómsveitinni asna en mér finnst persónulega eitthvað vera að þegar fólk er ekki inspírerað til að gera sitt besta þegar verið er að spila 4. sinfóníu Brahms.
Ég tók nú samt fljótt gleði mína þegar heim var komið og fékk þær fregnir að Real Madrid hefði tapað sínum leik, gegn Getafe. Það var nú til að kóróna allt :) Mér finnst reyndar markið sem þeir fengu á sig vera til skammar og mjög óíþróttamannslega að verki staðið og vil ég persónulega sjá Getafe menn opinberlega biðja afsökunnar á því að misnotað sér fagnaðarlæti Madríddar manna á þennan hátt.
Það er gott að sjá að Ronaldinho er farinn að komast í almennilegt form. Hann er búinn að vera í sorglegum öldudal núna í ansi langan tíma en loksins var honum gefinn tími og friður til þess að koma sér í almennilegt form.
Á morgun ætla ég að ná nokkrum klukkutímum í æfingar, þarf að hressa upp á tvöföldu tunguna hjá mér og reyna að venja mig af því að einblína of mikið á það sem tungan er að gera þegar ég spila hratt. Einbeita mér meira að því að blása nógu andskoti miklu lofti í gegnum lúðurinn og láta tunguna bara um sitt.
En ætla ekki að þreyta ykkur meira á tæknilegum hliðum básúnuspilamennsku, er farinn að sofa :)
No comments:
Post a Comment