Ég og Grímur erum að taka til eins og er. Marta ætlar að koma í kvöld og Grímur styður ekki alveg þá taktík mína að koma til dyranna eins og maður er klæddur. Hann er nú eldri þannig að ég verð að lúffa í þessu sem og öðru.
Kókið rann út í dag, allt í Diemen lokað. Verð að treysta á utanaðkomandi hjálp.
Enginn bjór til heldur, skelfingarástand. Maður lifir nú ekki lengi á rommi og viskí eintómu, eitthvað gin er til líka en ekkert tónikið.
Við félagarnir fórum á myndina I am Legend með Will Smith í gær. Mér fannt hún persónulega mjög góð, hægur stígandi í henni og ekki of mikið tillit tekið til þeirra sem geta ekki haldið athygli í nokkrar mínútur.
Jæja, halda áfram að taka til.
Sunday, February 3, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment