Tók daginn snemma í dag. Langaði til að byrja að taka saman greiningu mína á Schubert 9. Vann vel í 4 tíma og hafði meira að segja tíma til að horfa á einn Star Trek þátt áður en Grímur vaknaði og við fengum okkur morgunmat.
Þarf ekkert að mæta í skólann í dag né á morgun þannig að ég tók básúnuna með mér heim í gær. Og ætla að æfa mig heima. Er kominn á þann aldur að ég nenni ekki að fara í skólann ef ég þarf þess ekki. Heima er líka allt sem maður þarf á að halda, stutt í bækurnar og ef mann syfjar þá er betri aðstaða hér en bókasafnið til þess að fá sér smá kríu.
Tony er fluttur inn. Hann er hress og skemmtilegur og fyrstu kynni mín af honum eru mjög jákvæð. Ég og Grímur vonum dáldið, eldavélinnar vegna, að hann sé ekki alveg jafn mikill kokkur og Dimas. Eldavélin var orðin ansi skítug þegar við tókum hana í gegn á sunnudaginn.
Brassgrúppan fer til Chicago núna á fimmtudag, verð eini low brass leikarinn í klassísku deildinni í skólanum í heila viku. Kenneth ætlar að skreppa til Danmerkur og skilur mig eftir, ég var nú búinn að plana að fara með honum, en ég er nú að fara til Íslands eftir 2 vikur þannig að það tekur því varla.
Get ekki beðið eftir vorinu,
þarf að fá meira koffín í blóðið til þess að halda mér vakandi. Tók daginn kannski aðeins of snemma, en það er bara gaman. Gott þegar maður verður inspíraður til að vinna vel.
Marta er nú að sjá slæmu hliðarnar við það að hafa 2 hljómfræði kennara, kennarar eiga nefnilega til að vera með skiptar skoðanir. Það er náttúrulega hennar vandamál, undir henni komið að taka við því sem hjálpar henni og útiloka það sem hjálpar henni ekki.
Nú kallar kókið,
Tuesday, February 5, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment