Wednesday, February 27, 2008

The Total Musician

Það beið mín glaðningur þegar ég loksins kom heim í gærkvöldi. DVD-diskur BIS: Christian Lindberg: The Total Musician. 3klst og 40 mínútur af efni með meistaranum. Mér tókst nú ekki að horfa á það allt en horfði á eina heimildarmynd sem kallast: To follow your own star. Mjög persónuleg heimildarmynd um Christian Lindberg og varpar ljósi á hvernig persóna hann er í raun og veru, undir niðri öllum trúðslátum og mótorhjólastælum er auðmjúkur listamaður eilíflega ástfanginn af konu sinni og börnum.

Ég verð að játa það að ég var grátandi svona helming myndarinnar.

Eftir smá stund tekur Barcelona á móti Valencia í spænska bikarnum, þarf að fara að koma mér í stellingar fyrir það. Ronaldinho og Eiður verða hvíldir, en það ætti ekki að koma að mikilli sök því í stað þeirra koma Henry og Deco. Þessi hópur sem þeir eru með er með ólíkindum.

Ég ætlaði að taka mér básúnufrí í dag, það mistókst. Tók nærri þrjá tíma samtals. Líður frábærlega!

En nú kallar boltinn.

No comments: