Ég var hins vegar í spilanlegu óstuði í dag. Tók bara einn og hálfan klukkutíma. Ja, óstuð er kannski aðeins of mikið sagt. Ég náttúrulega kíkti til ömmu og hafði ekki allan tíma í heiminum.
Ég ákvað að sleppa konsertnum hjá Sinfó í kvöld, Katrín vildi hitta mig og ég tek nú hana fram yfir Sinfó. Kíkti svo á sinfó liðið eftir að ég var búinn að skila af mér stelpunni og heyrði að tónleikarnir hefðu gengið vel. Ég var reyndar heillengi í kjallaranum í háskólabíói og skutlaði Frank heim þegar klukkan var farin að ganga miðnætti.
Vegna félagsfræðiverkefnis Katrínar, horfðum við á myndina Crash. Úrvalsmynd sem varpar sterku ljósi á vandamál sem geta fylgt því að búa í samfélagi með mismunandi menningar og þjóðhópum. Fordómar fólks eru svo sterkir og undirliggjandi og jafnvel þeir sem blöskrar þegar þeir sjá fordóma annara eru svo þegar á reynir engu betri sjálfir.
Hræðsla í þjóðfélögum er engum til góðs nema þeim sem þeim stjórna. Trúabrögðin stjórnuðu Evrópu á þann hátt fyrir ekki svo mörgum árum og nú virðist sem mörgum löndum sé stjórnað með syndsamlegum hræðsluáróðri af hálfu stjórnmálamanna.
Fer í tíma til Jessicu í fyrramálið, ætti að fara að sofa svo ég verði vel úthvíldur og í góðu standi.
Góða nótt.
No comments:
Post a Comment