Ég og Haraldur höfðum rétt tíma til að ná okkur í pizzu áður en leið mín lág niður í Háskólabíó þar sem Katie beið mín og ætlaði að smygla mér inná sinfóníutónleikana. Ég var mjög hrifinn af spilamennskunni, sérstaklega í Beethoven 6. Maður sér ekki oft svona mikla leikgleði í atvinnumanna hljómsveitum. Ég skemmti mér konunglega og gerði mér enn og aftur grein fyrir því hvað hljómsveitin er góð, frábærir tónlistarmenn í öllum lykilstöðum. Stjórnandinn var líka ansi flinkur.
Það er verið að tollafgreiða Lindberg Dvd diskinn sem ég get ekki beðið eftir að fá í hendurnar. Finnst nú ótrúleg smámunasemi að vera að gera eitthvað mál með eitt stykki dvd disk, þó að hann sé tvílaga.
Fór í klippingu áðan og er ansi stutthærður á minn mælikvarða.
Fékk vægt sjokk þegar ég vaknaði í morgun og sá allt undir þykku lagi af snjó. Ekki beint venjulegt veður fyrir Reykjavík á þessum árstíma.
Það er nú alltaf gott að koma heim og er þetta engin undantekning frá þeirri góðu reglu.
En nóg komið af bloggi ;)
No comments:
Post a Comment