Í kvöld mun ég hjálpa til á æfingu fyrir brassdeild Ungfóníu, ég verð sérfræðingsaðstoð Gunnsteins. Það ætti bara að vera gott. Það er miður að enn í dag er mikið af röngum kennsluaðferðum sem gera meira ógagn en gagn.
Í dag lét ég undan freistingu íslenska bakkelsins og keypti mér snúð. Þvílíkur dýrðarbiti miðað við góssið sem hægt er að kaupa í bakaríum niðurlendinga. Passa verður sig samt á því að fara ekki fram úr öllu hófi þegar kemur að sætindum og spara þau til betri tíma. Þá nýtur maður þeirra líka betur.
Hotmeilinn er búinn að vera í leiðindaástandi í allan dag, varla að maður geti komist inn til að skoða póstinn sinn. Hvað þá til að spjalla kannski við vini sína sem staddir eru erlendis.
Hann Jói kallinn hringdi í mig áðan og sagði mér frá fyrirhugaðri heimsókn sinni til Amsterdam, hann ætlar að kíkja í heimsókn nú á laugardaginn, daginn sem ég kem. Hann lendir á centralnum aðeins áður en ég lendi á Schiphol, mælum okkur bara mót á lestastöðinni. Grímur kemur svo til Amsterdam á sunnudaginn, þannig að ég og Jói verðum að finna okkur eitthvað að gera á laugardeginum. Ætti ekki að vera alltof erfitt. New Trombone Collective er með tónleika einhverstaðar í Hollandi þá um kvöldið, kannski að maður skelli sér bara á þá.
Ég er að spá í að nýta Schubert greiningu mína sem ég kláraði um daginn í annan áfanga. Ég bara nenni ekki að gera annað verkefni eins og er. Ég greindi eiginlega yfir mig um daginn og hef varla getað hugsað um hljómasambönd í nokkra daga. Gaman svo að koma heim þegar pabbi talar varla um annað en það sem hann er búinn að finna í La Mer eftir Debussy.
Þetta er eitthvað sem ég verð að passa mig á, ég verð svo andskoti manískur alltaf og get svo ekkert hugsað um viðkomandi mál í einhvern tíma á eftir. Miklu lógískara er að vinna frekar jafnt og þétt yfir langan tíma, ekki taka þessar guðsvoluðu skorpur sem enda með því að maður getur ekki hugsað sjálfstæða hugsun í 2 daga.
Jæja, er að spá í að lesa eða horfa á dvd. Einhver leiði í mér núna, og gremja yfir varaástandi mínu.
No comments:
Post a Comment