Wednesday, February 20, 2008

Svaf yfir mig

Í gærkvöld sá ég Liverpool leggja Inter af velli í ótrúlega daufum leik. Þreytumerki leikmannanna hljóta að hafa færst yfir á mig því ég svaf yfir mig í morgun, vaknaði ekki fyrr en rúmlega hálf 11, ekki að það sé eitthvað slæmt nema fyrir þá staðreynd að ég átti að mæta í tíma klukkan hálf 10.

Er samt búinn að eiga fínan dag í dag, tenorinn er reyndar niðrí skóla þannig að ég hef bara getað spilað á altinn í dag, það er svo skemmtilegt. Síðan er ég auðvitað búinn að dytta að hinu og þessu til að undirbúa flugið á morgun, skellti í eina vél.

Í kvöld er svo taka 2 í meistaradeildinni og að sjálfsögðu fer ég á barinn. Það er samt svakalegt hvað sígaretturnar fara illa með mig, ég mun skjóta upp flugeldum þegar reykingabannið tekur gildi hér í Hollandi.


Aðalleikurinn fyrir mig í kvöld er Celtic-Barcelona en ég mun að sjálfsögðu fylgjast með hinum leikjunum, þá sérstaklega Arsenal-AC Milan. Hlakka til kvöldsins en verð að muna að ná í básúnuna í skólann fyrir leikinn, svo ég þurfi ekki að gera það í fyrramálið. Ég bara nenni ekki að fara niður í bæ á morgun, beint á flugvöll er planið.

Næ einum star trek þátt áður en lestin fer ;)

Ísland á morgun

No comments: