Sunday, February 10, 2008

Tímamót

Gærdagurinn var sögulegur á margan hátt. Keyptur var DVD spilari inná heimilið, rölt til Diemen Noord þar sem lamadýr varð á vegi míns og Gríms, Voyager klárað og svo ofan á allt góður æfingadagur.

Eins og síðustu daga tók ég daginn mjög snemma, fínpússaði aðeins greiningarskýrslu mína áður en ég byrjaði á síðasta Voyager sprettnum. Byrjaði að spila á munnstykkið um klukkan 10 og var svo að spila með hléum alveg til klukkan 16:00. Ég notaði ekki æfingademparann neitt í gær og skemmti mér konunglega við að taka á ýmsum vandamálum.

Hápunktur dagsins var hins vegar gönguferð sem ég og Grímur ákváðum að fara í vegna sameiginlegrar löngunar til að hreyfa okkur, erum báðir án hjóls eins og stendur og veðrið var svo æðislegt að gönguferðin varð eiginlega óumflýjanleg.

Við ákváðum að kanna ókannað svæði af okkar hálfu og röltum yfir járnbrautateinanna til þess að athuga hvað rækist á veg okkar, við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Heilt hverfi var þar og ansi myndarlegt í þokkabót, en það varð samt ekki til að toppa lamadýrið.

Við sáum lamadýr! Lítill afgirtur grasbali í næsta nágrenni við 10 akreina hraðbraut hafði að innihalda kostulegt dýralíf, 2 kindur af óíslensku kyni, lamadýr og myndarlegan hana. Ég hafði aldrei áður séð lamadýr nema í sjónvarpi og þetta var mikil upplifun, verst að myndavélin var fjarri góðu gamni. En við uppgötvuðum falin sælureit þarna, á góðum degi væri tilvalið að setjast í brekku þarna nærri og horfa á lamadýrið, með nesti.

Annað sem við gerðum í þessum rómaða göngutúr var að festa kaup á dvd spilara, og andskoti nettum í þokkabót. Hann kostaði ekki nema 34 evrur í Blokker og við þurftum ekki að hugsa okkur tvisvar um þegar við sáum kvikyndið. Við héldum svo uppá kaupin með því að horfa smá á Mahler 2 með Haitink og svo á nokkra simpsons þætti yfir frosnum pizzum sem við festum kaup á.

Grímu fór svo á tónleika en ég ætlaði mér að horfa á leik Sevilla og Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni. Ég varð hins vegar ófær um að fara vegna þreytu, ég tók daginn aðeins of snemma til þess að hafa orku til að horfa á leik sem byrjaði klukkan 10 að kvöldi. Ég þurfti að fara í rúmið um 7 leytið og svaf til að verða 2, góður nætursvefn það.

Það er einhvern veginn svo merkilegt að þegar ég vakna í myrkri þá á ég auðveldara með að fara á fætur en í björtu, eitthvað við það að augun virki betur í myrkrinu.

Nú er hins vegar kominn tími á morgunmat, svo er kannski ekki úr vegi að byrja á Star Trek: Deep Space 9.

Þangað til næst

No comments: