Friday, May 11, 2007

Amma og tennur

Amma mín á afmæli í dag. Hún er orðin 80 ára. Til hamingju með það amma mín.

Hver man ekki eftir að hafa séð ungbarn með sársaukasvip nagandi gúmmíleikfang. Skilningsrík móðir bendir grunlausum áhorfanda á að barnið sé að taka tennur. Það er ég að gera núna. Og það er sárt.

Ég er með tiltölulega lítinn munn. En tönnunum er alveg sama. Endajaxlarnir reyna að troðast út þótt ekkert sé plássið. Meðan þessir vaxtakippir standa yfir get ég ekki spilað á básúnuna. Dagurinn í dag hefur að þeim sökum farið í bókina Viltu vinna milljarð? sem móðir mín var svo umhyggjusöm að senda mér.

Ég náði ekki að sofna fyrir klukkan 2 í síðustu nótt. Klukkan var eitthvað um 3 held ég. Ég hef sjaldan sofið jafn vel. Ég vaknaði að sjálfsdáðum 12 klukkustundum síðar. Ef maður gæti sofið svona vel á hverri nóttu þá væri lífið nú ljúft.

En ljúfleiki svefnsins var eyðilagður með pyndingu vökunnar. Mér datt í hug að svolgra í mig smá gini í heiðarlegri tilraun til að draga úr verkjunum en ég sá að mér. Sambýlingar mínir gætu misskilið það ef ég væri angandi af ginlykt.

Mér sýnist veðrið bara vera nokkuð gott. Það er búin að vera leiðindarigning undanfarið og hefur leitt af sér mikla Íslands-söknun. Á Íslandi er hægt að fara á bíl ef það rignir, ekki hér. Það hefur verið óumflýjanlegt að afklæðast að fullu þegar heim var komið eftir hjólatúr í rigningunni. Undnar og upphengdar nærbuxur minna mig á svaðilfarir gærdagsins.

Þetta er að nokkru leyti nostalgísk upplifun. Minnir mig á það þegar maður var sendur út að "leika sér" í mígandi rigningu. Maður lét sig hafa það vegna svikinna loforða um heitt kakó í þá daga. Nú er maður tilneyddur.

Og nú er ég búinn að létta af mér í dag,

2 comments:

Anonymous said...

það er ekkert skemmtilegra en að leika sér í sunnlenskri rigningu

Anonymous said...

Ég get nú hugsað upp ansi marga hluti sem eru töluvert skemmtilegri. En sunnlensk rigning er betri en rigningin á Akureyri.