Nú er í gangi hið mánaðarlega bankavesen. Ég á að fá námslánin inná reikninginn minn fyrsta hvers mánaðar en nú er kominn sá sjöundi og innistæðan á reikningnum mínum eru 2 evrur og 16 cent. Þetta er eins og gefur að skilja mjög þreytandi þar sem ég get ekki borgað leiguna mína fyrr en ég fæ peninginn. Og ég get varla borðað þar sem ég á nær engan pening.
Ég náði að spila aðeins í dag. Í fyrsta sinn síðan ég datt af hjólinu á föstudaginn. Bakið er ekki gott og get ég bara spilað í 5 mínútur í einu. Ég geri hollar bakæfingar á hverjum degi og vona að þetta lagist hið fyrsta.
Ég skellti mér og kaus í dag. Það tók ansi mikinn tíma að komast þangað vegna mikillar umferðar. Notaðist við sporvagninn í dag bæði vegna slæms baks og mikillar rigningar. Fór svo í píanótíma og svo bara heim. Er að eins búinn að taka til inní herberginu mínu.
Ég er dottinn alvarlega ofan í bókina Skáldið eftir Michael Connelly. Gat ekki slitið mig frá henni í nótt uns ég gat ómögulega haldið augunum opnum.
Ætla að finna mér eitthvað í gogginn núna
bless bless
Monday, May 7, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Ömurlegur þessi banki! - Fékkstu ekki bókina „Viltu vinna milljarð“?
Post a Comment