Fór út að skokka í morgunsárið. Það var æðislegt. Sá sólarupprásina.
Út um allar götur eru leifar gærdagsins. Ég rakst á heilu kassana af bókum. Allar á hollensku reyndar. Það var bömmer. Ég er nefnilega að leita mér að lesefni.
Að skokkinu loknu gerði ég samviskusamlega mínar daglegu teygjuæfingar og fór svo í sturtu og rakaði mig.
Það er stór dagur í dag. Fyrir utan hefðbundar æfingatarnir fer ég í fyrsta tímann í 20. aldar greiningu síðan fyrir páska. Ekki hafa verið kenndar aukagreinar síðan þá. Í kvöld er svo stórleikur Liverpool og Chelsea.
Það er einn svakalegur þáttur sem kemur í veg fyrir að ég geti notið skokksins eins og ég vildi. Fæturnir mínir eru mislangir og eftir svona korters skokk er ég kominn með nístandi sársauka í vinstri ilina. Ef ég stoppa ekki fljótlega leiðist verkurinn í bakið og þá er sá dagur ónýtur. Tímasetti hringinn minn vel í dag. Var rétt rúmlega korter að skokka.
Ég er búinn að lesa nokkra pósta á básúnuspjall vefnum um líkamlegar æfingar sem brass leikarar gera. Ég komst að því að einn af þjálfurum ólympíuliðs Bandaríkjanna í frjálsum íþróttum er frístundabásúnuleikari. Hann krufði í tætlur hinar ýmsu íþróttir og sagði kosti þeirra og galla. Sund, hjólreiðar og labb er að hans mati hollast.
Bakaríið í næstu götu opnar eftir klukkutíma. Aðrar búllur opna síðar. Mig langar afskaplega mikið í vínber núna eða bara ávexti. Ætla að kaupa mikið af ávöxtum í dag. Hef litla ávexti borðað uppá síðkastið. Það er svo skrýtið að þegar maður er veikur þá hefur maður enga löngun til að borða ávexti en um leið og manni batnar þá þyrstir mann í þá. En það ætti í raun að vera öfugt. Eða kannski er ég öfugur?
Ef ykkur leiðist þá skuluð þið fara á www.youtube.com og slá inn Whose Line Is It Anyway? Hlátur og bætt líðan er tryggð. Fyrir þá sem eiga diskasafn með Christian Lindberg þá er líka tilvalið að hlusta á 3. þáttinn í Bourgeous konsertinum á disknum Windpower og Telemann konsertinn á The Winter Trombone, annan og fjórða þátt.
Ég verð samt að vara fólk við. Það er hægt að verða of æstur þegar hlustað er á Lindberg. Ef það gerist er gott að hlusta smá á Alain Trudel í klassísku básúnukonsertunum.
Og nú vona ég að enginn viti um hvað ég er að tala.
Talandi um básúnur. Básúnufestivalið byrjar á fimmtudag í Rotterdam. Ég er búinn að ákveða að fara á þrenna viðburði. Klinik með Jonas Bylund klukkan fimm á föstudag. Gala tónleika á laugardagskvöldinu og lokatónleikana á sunnudag.
Það hefði verið freistandi að skrá sig á masterklassinn með Michel Bequet en veikindin komu í veg fyrir það. Ég verð bara að bíða eftir Korfu í júlí.
Æ ég ætla að gera eitthvað af mér til að láta tímann líða hraðar þangað til bakaríið opnar.
Ble
Tuesday, May 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Frábært, - skokk og ávextir, batnandi manni er best að lifa!-
Áfram Liverpool!
fullkominn undirbúningur fyrir kvöldið, ég held ég reyni það sama til að róa taugarnar
Ég skil hvað þú átt við með Lindberg.
Ég upplifi svipað með Radek Baborák.
Chelsea hyggur á grimma sókn ....!
Post a Comment