Tuesday, May 8, 2007

BRRRRRRRR

Tókst að borga leiguna. Fékk þær fréttir í dag að námslánin miðast greinilega við að skólinn endi í lok maí ekki í lok júní eins og hér. Einhver misskilningur að minni hálfu. Það þýðir ekki annað en að herða sultarólina og sleppa öllum tónleikum. Ekkert nema helstu nauðsynjar ef lán fyrir maí mánuð á að duga fram í miðjan júlí.

Ég er orðinn ágætur í bakinu en get ekki spilað lengi í einu. Eftir nýjustu fréttir er ég ekkert mótiveraður fyrir því að spila.

En jæja, svona er víst lífið. Hæðir og lægðir í þessu eins og öðru.

No comments: