Stærsta afmæli sem ég hef nokkurn tímann séð virðist vera á enda runnið. Það var skemmtileg sjón að sjá nærliggjandi götur breytast í einn allsherjar útimarkað. Í miðbænum er eflaust allt á fullu, en það er nú það yfirleitt.
Ég er búinn að ná fyrra formi á básúnuna. Eftir 3 daga er ég kominn aftur í fyrra form. Ég gat ekki spilað í 4 daga sökum veikindanna. Og fyrstu 2 dagarnir sem ég spilaði aftur á hljóðfærið fóru bara uppbygginga starfsemi.
Með bættu veðri er fólk minna heima hjá sér. Ekki ég samt. Það er tilvalið að nýta sér fjarveru annarra og æfa sig. Ég ætla nú samt að rétta af sólarhringinn í þessari viku. Mánuður í próf og ég á að spila klukkan 10 í prófinu. Verð að vera búinn að venja mig við þá tilfinningu.
Það er tónleika þorsti í mér núna. Ég held ég skelli mér í Concertgebouw, ef það er eitthvað spennandi. Nú eru samt 2 leikir í meistaradeildinni í þessari viku. Það fer margt eftir útkomu þeirra leikja. Ef hvorki Liverpool né Milan komast í úrslitaleikinn þá verð ég ekki viðræðuhæfur í viku. Nema á msn.
Æ, ég er eitthvað þreyttur.
Meira síðar.
Tuesday, May 1, 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment