Saturday, May 26, 2007

Veislan

Þá er stúdentsveisla bróður míns afstaðin. Var á milli 5 og 7. Gaman að hitta ættingjana og fjölskylduvinina. Það voru þvílíkar kræsingar á boðstólunum sem féllu í mjög góðan farveg. Quiznos bátarnir runnu út, ég fékk hugmyndina þannig að ég er frekar sáttur.

Barcelona vann síðan leik sinn í kvöld. Real Madrid vann reyndar líka þannig að spennan er enn í algleymingi.

Og þá er ég uppiskroppa með umræðuefni. Ég efast um að nokkur hafi áhuga á að lesa um ferð í Sorpu og í Bónus, hvað þá Nóatún.

Meira síðar,

No comments: